Stjörnumót TM – Liðaskipan og mæting

Kæru foreldrar,

Hér má sjá pdf skjal sem inniheldur liðaskipan og mætingartíma hvers liðs á Stjörnumótinu á laugardaginn:

Stjörnumót – Liðaskipan

Leikjaplan mótsins verður sent út á morgun eða föstudag.

Það vantar enn töluvert af liðsstjórum. Áhugasamir geta sent póst á halldor.emilsson86@gmail.com. Við verðum með 16 Stjörnulið á svæðinu og því ómögulegt fyrir okkur að stjórna öllum leikjum. Það er því mjög mikilvægt fyrir okkur að fá liðsstjóra fyrir hvert lið. Hlutverk liðsstjóra er að sjá til að strákarnir séu komnir á réttan völl og á réttum tíma, ásamt því að stjórna þeim leikjum sem við þjálfararnir náum ekki að mæta á.

kveðja,
þjálfarar
halldor.emilsson86@gmail.com

Þessi færsla var birt undir Uncategorized. Bókamerkja beinan tengil.

Færðu inn athugasemd